Skip to main content

We have a tailored site for international audiences

Signicat Blogg

Að byggja upp traust í hverri undirskrift

Það er sagt að maður geti ekki treyst neinum nú til dags. Frá upphafi hefur Signicat tekið þessa hugmynd sem áskorun og unnið að því að brjóta hana niður svo viðskiptavinir okkar geti sofið rótt á næturnar.

Í stafrænum heimi nútímans skiptir traust öllu máli. Við tökum markmiði okkar um öruggan stafrænan heim mjög alvarlega – hjá Signicat vinnum við að því að byggja upp og viðhalda trausti í öllu því sem við gerum. Lausnir Signicat eru loforð um traust og öryggi þegar lagt er af stað í stafræna vegferð. 

En hvað er nýtt?

Traustsstimpill Signicat

Hvað er Traustsstimpil Signicat? Þú munt taka eftir Stimplinum á ýmsum stöðum þegar þú undirritar skjöl með Dokobit frá Signicat. Stimpillinn er sjónrænt tákn þeirra gæða sem þú mátt búast við þegar þú notar vörur frá Signicat. Þegar þú sérð Stimpilinn veistu að þú getur treyst þjónustunni sem þú notar. Stimpillinn tengist beint sýn Signicat um áreiðanlegan stafrænan heim – hann er sýnilegt tákn um skuldbindingu fyrirtækisins til framúrskarandi þjónustu í stafrænni auðkenningu og undirskriftarþjónustu.

Traustsstimpill Signicat er þín trygging fyrir því að þú getur örugglega treyst þjónustunni sem þú notar.

Af hverju geturðu alltaf treyst Dokobit frá Signicat?

Rafrænar undirskriftir eru ekki bara krass á stafræn gögn. Þær eru mun meira en það. Rafrænar undirskriftir fela í sér samsetningu af tölulegum kóðum og aðgerðum sem eru einstök í hverju tilfelli.

Signicat hefur skuldbundið sig til að veita hámarks persónuvernd og fylgni við allar viðeigandi reglugerðir. Það eru margar ástæður fyrir því að þú getur alltaf treyst Dokobit frá Signicat. Til dæmis, vissir þú að:

  • Starfsemi Signicat, innri kerfi, þróunar- og stuðningsferli standast ISO/IEC 27001 – alþjóðlega viðurkenndan staðal fyrir bestu starfsvenjur í öryggisstjórnun.
  • Signicat er staðfastlega skuldbundið til að vernda persónuupplýsingar þínar. ISO/IEC 27001 staðallinn er talinn bestur fyrir samræmi við persónuverndar reglugerðina, GDPR, og nær til næstum allra nauðsynlegra krafna sem settar eru fram í henni.
  • Dokobit, sem er hluti af Signicat, er viðurkenndur traustþjónustuveitandi fyrir rafrænar undirskriftir og innsigli og er á traustþjónustulista ESB.
  • Allar undirskriftir sem búnar eru til með aðstoð Signicat uppfylla kröfur um fullgildar rafrænar undirskriftir eða útfærðar rafrænar undirskriftir samkvæmt eIDAS-reglugerðinni. Þessar undirskriftir eru viðurkenndar í öllum ESB-löndum og víðar.
  • Signicat vinnur eingöngu með þjónustuaðilum þar sem öryggi er í algjörum forgangi.

Við erum mjög ánægð með að Dokobit er knúið áfram af leiðandi stafrænni auðkennisþjónustu Evrópu, Signicat, sem hefur staðið vörð um áreiðanlegan stafrænan heim síðan 2006. Vertu örugg(ur) á meðan þú rafrænt undirritar skjöl – Signicat mun vera til staðar og byggja upp traust á hverju stigi.