Skip to main content

We have a tailored site for international audiences

Auðkenndu notendur án rafrænna skilríkja

Með Signicat getur þú auðkennt notendur á netinu með því að greina gild persónuskilríki eins og vegabréf, ökuskírteini eða nafnskírteini. Hvort sem þörf er á einungis lágu eða háu fullvissustigi sem mætir öllum kröfum reglugerða þá getur þú notað PictureID eða VideoID til að fá hraða og örugga niðurstöðu um hver einstaklingurinn er.  

Af hverju samþætta við Signicat?

  • Sjálfvirkar og hraðar nýskráningar

    Staðfestu auðkenni notanda á 15-25 sek.  

  • Gervigreind sem tryggir öryggi og reglufylgni

    Nákvæm gervigreind greinir lífkenni og grunsamleg frávik í persónuskilríkjum til að mæta ströngustu kröfum.  

  • Sveigjanleg samþætting

    Virkar frá öllum tækjum, tölvum, spjaldtölvum og símum sem hafa myndavél.   

Hver er munurinn á PictureID og VideoID?

PictureID  

PictureID gerir notendum kleift að senda ljósmynd af persónuskilríkjum og síðan andlitsmynd af sjálfum sér (sjálfu). Háþróuð tækni greinir útgáfuaðila skilríkjanna og áreiðanleika þeirra, og sannreynir hvort andlitið á einstaklingnum passi við handhafa skilríkjanna.

VideoID  

VideoID notar strangari sannreyningu með því að streyma mynd í rauntíma frá myndavél notandans. Háþróuð gervigreind leitar að grunsamlegum frávikum sem gæti bent til að skilríki séu fölsuð, hvort handhafinn sé lifandi og sýni hreyfingu og metur hversu líkt andlit notandans er samanborið við þau persónuskilríki sem framvísað er. Fjölmargir öryggisþættir eru skoðaðir til þess að mæta hæstu kröfum og fylgni við viðeigandi reglugerðir.  

Hvernig virkar ferlið í skrefum?

  1. Framvísun persónuskilríkja

    Notandinn virkjar myndavél tækisins og mynd er sjálfvirkt tekin af persónuskiríkjum hans. Einnig er hægt að hlaða inn mynd af skilríkjunum ef notandinn á hana fyrir.  

  2. Skoðun lífkenna

    Næst er staðfest hvort notandinn sjálfur sé sami einstaklingur og í framvísuðum persónuskilríkjum. Líkindi á andliti notandans er borið saman við ljósmynd í skilríkjunum og greint. VideoID kannar auk þess hvort viðkomandi hreyfist, kannar djúpfölsun og hvort streymi komi frá myndavél tækisins eða hvort myndband sé fyrirfram tekið upp.

  3. Niðurstöður í rauntíma

    Niðurstöðurnar koma samstundis og sérhver staðfesting tekur yfirleitt um 15-25 sek. til þess að geta nýskráð notendur hratt og örugglega.