Skip to main content

We have a tailored site for international audiences

Signicat Mint - Grafískur ferlasmiður sem styttir tíma við hönnun stafrænna ferla án forritunar.

Notaðu Signicat Mint til að hanna, smíða og útfæra örugg viðskipti með grafískum ferlasmið án forritunar. Samþættu rafræna auðkenningu, undirskriftir og ýmsar uppflettingar fyrir einföld eða flókin ferli. Settu upp eigið útlit og lén fyrir bestu upplifun viðskiptavina. Hafðu samband við söludeild til að fá kynningu á Signicat Mint.

Kostir

  • Hannaðu án kóða

    Settu upp flókin verkferli með tilbúnum sniðmátum eða hannaðu þitt eigið frá grunni án alls kóða.

  • Yfirsýn yfir öll gögn

    Tengdu rafræn skilríki við ferli þannig að allir notendur séu auðkenndir og gögn undirrituð. Þú getur nálgast öll gögnin og ferli notenda á einum stað.

  • Eigið lén og útlit

    Settu upp þitt eigið lén og útlit til að tryggja bestu upplifun þinna viðskiptavina sem vilja senda gögn og aðrar upplýsingar.

Viðskiptavinir um allan heim nota Signicat Mint til að sjálfvirknivæða viðskiptaferlin sín.

Signicat Mint á 2 mínútum

Sjáðu hvað Signicat Mint getur gert fyrir þig!

Settu upp þína viðskiptaferla á einfaldan hátt

Hannaðu ný ferli fyrir nýskráningar, umsóknir, auðkenningar og undirskriftir með Signicat Mint. Þú einfaldlega dregur og sleppir nýjum skrefum inn í ferlið eftir þörfum. Engin þörf á forritun við að smíða flókin ferli frá grunni með miklum tilkostnaði.

Sparaðu tíma og fjárfestingu með því að stýra og viðhalda þínum ferlum sjálfur.

Lausn án kóða, sniðin að þínum þörfum

Signicat Mint er notendavænn og aðgengilegur ferlasmiður - með lausninni getur þú hannað flókna eða einfalda ferla sjónrænt fyrir nýskráningar, umsóknir og undirritun skjala. Settu upp eigið útlit og lén þannig að viðskiptavinir fái besta upplifun.

Auðkenndu viðskiptavini með rafrænum skilríkjum til að tryggja rekjanleika og öruggari viðskipti.

Tölfræði yfir alla notkun. Sjáðu yfirlit fyrir öll ferli, meðaltíma í hverju skrefi og greindu hvernig hægt er að bæta þau. 

Rafrænar undirskriftir og samþykki fyrir samninga og önnur skjöl.

Vertu stafrænt sjálfbær með Signicat Mint

Signicat Mint styður rafræn skilríki frá Auðkenni og fjölda annara útgáfuaðila í Evrópu. Auk þess er hægt að nota SMS auðkenningu eða persónugreiningu með vegabréfum eða öðrum gildum persónuskilríkjum til að auðkenna notendur. 

Með Signicat Mint API er einnig hægt að samþætta Mint ferli við eigin upplýsingakerfi til þess að skila gögnum á réttan stað eða senda upplýsingar inn í virk ferli, t.d. með eigin uppflettingum. 

Notaðu tölfræði og gögn til að besta ferla. Greindu í hvaða skrefi notendur hiksta eða stoppa til að bæta ferla.

Með því að setja sjálf upp viðskiptaferlin geta fyrirtæki orðið meira sjálfbær án óþarfa forritunar eða kostnað við ráðgjöf.