Rafræn innsigli fyrir fyrirtæki og stofnanir
Með rafrænum innsiglum í þinni stafrænu þjónustu getur þú innsiglað skjöl til þess að tryggja heilleika og uppruna skjalanna.
Hvers vegna innsiglunarþjónusta?
-
Tilbúið til notkunar
Innsiglunarþjónusta Dokobit veitir þér allt sem þú þarft fyrir rafræn innsigli: rafræn skilríki frá Auðkenni o.fl., HSM búnað til að hýsa þau og notendavænt viðmót eða vefþjónustu til að beita þeim.
-
Sameiginleg notkun
Þitt starfsfólk mun á öruggan hátt geta samnýtt innsigli fyrirtækisins í aðstæðum þar sem það hentar betur en að nota persónulega undirskrift starfsmanns.
-
Engin fjárfesting eða viðhaldskostnaður
Þú þarft ekki að fjárfesta í eigin HSM eða öðrum dýrum búnaði fyrir þitt umhverfi. Við sjáum um það sem þú þarft.
-
Full þjónusta við umsóknarferlið
Við aðstoðum fyrirtæki við að sækja um og setja upp ný innsigli frá Auðkenni frá upphafi til enda.
Eiginleikar sem þú færð með Dokobit
-
Með því að innsigla skjöl rafrænt með útfærðu eða fullgildu innsigli er tryggt að ekki sé hægt að breyta gögnum eftir að skjöl hafa verið innsigluð.
-
Skjöl sem innihalda rafrænt innsigli fyrirtækis gefur móttakanda skjals staðfestingu á að skjalið komi án nokkurs vafa frá viðkomandi fyrirtæki eða stofnun.
-
Þjónustan fyrir rafræna innsiglun notar fullgilda tímastimpla til að fyrirbyggja að hægt sé að falsa tíma innsiglunar.
-
Dokobit tryggir 99,90% þjónustuframboð.
-
Gerir þér kleift að innsigla mikið magn af skjölum samtímis í staðinn fyrir að innsigla hvert og eitt skjal í einu.