Rafræn undirritun er auðveld með Dokobit
Undirritaðu lagalega bindandi skjöl auðveldlega og örugglega um alla Evrópu.
Með Dokobit by Signicat er það leikur einn.
Hvað er Dokobit?
Dokobit, sem er ein af vörum Signicat, er veflausn sem gerir einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum fært að rafrænt undirrita skjöl. Hægt er að nota lausnina sjálfstætt eða samþætta við vefþjónustur. Dokobit fylgir að fullu eIDAS-reglugerðinni og er einn fárra fullgildra þjónustuveitenda (QTSP) í heiminum sem hafa hlotið vottun um fylgni fyrir viðeigandi lög nr. 55/2019 um rafrænar undirskriftir og aðrar traustþjónustur, og þar með skráður á Traustlista ESB.
Öruggar og lagalega bindandi rafrænar undirskriftir
Undirskriftir með rafrænum skilríkjum eru meira en stafrænt rithandarsýnishorn. Dokobit styður skilríki frá Auðkenni og útbýr fullgildar rafrænar undirskriftir sem uppfylla ströngustu kröfur eIDAS.
-
Örugg réttaráhrif
Dokobit styður fullgildar rafrænar undirskriftir, sem samkvæmt lögum hafa sömu réttaráhrif og handritaðar undirskriftir.
-
Heilleiki skjala tryggður
Skjöl sem eru undirrituð með Dokobit eru tryggð gegn breytingum og fölsunum aftur í tímann.
-
Lagalega bindandi
Rafrænar undirskriftir frá Dokobit eru lagalega bindandi og samþykktar um alla Evrópu.
Allt sem þú þarft til að einfalda vinnuna
Dokobit kynnir snjallari leið til að vinna hraðar. Rafræn undirritun er aðeins lítið brot af því sem þú getur gert með lausninni.
-
Undirritaðu skjöl með lagalega bindandi undirskriftum og fullgildum tímastimpli til að tryggja öryggi gegn fölsunum aftur í tímann.
-
Athugaðu hvort undirskriftir á skjölum sem þú færð frá öðrum aðilum séu gildar og lagalega bindandi.
-
Undirritaðu skjöl með fullgildum rafrænum undirskriftum um alla Evrópu. Dokobit styður fjölbreytt úrval rafrænna skilríkja og skjalasniða.
-
Undirritendur geta stillt viðmót Dokobit á íslensku, ensku, dönsku, norsku, sænsku, finnsku, þýsku, eistnesku, lettnesku, litháensku, hollensku eða frönsku.
-
Aðeins réttir aðilar sem hafa auðkennt sig með rafrænum skilríkjum geta opnað og nálgast skjöl.
-
Með sjálfvirkum tilkynningum getur þú fylgst með þegar skjöl hafa lokið undirritun. Hægt er að fá tilkynningar í Dokobit appið eða með tölvupósti til að fylgjast betur með mikilvægum skjölum.
-
Nákvæm atburðarskrá sýnir allar snertingar og atburði notenda fyrir sérhvert skjal.
-
Undirritendur geta skráð athugasemdir við skjöl t.d. ef þeir hafna að undirrita skjal sem þeir hafa athugasemdir við. Sendandinn getur þá brugðist við strax og sér af hvaða ástæðu þátttakandi vildi ekki undirrita skjal.
-
Vistaðu tengiliði í tengiliðaskrá til að finna þá auðveldlega næst þegar þú þarft að deila skjali.
Dokobit appið gefur þér enn betri yfirsýn yfir alla notkun.
Með Dokobit appinu getur þú unnið á enn skilvirkari hátt og þarf ekki að láta mikilvæga samninga skemma sumarfríið. Þú færð alla frábæru eiginleikana í Dokobit beint í vasann þannig að þú getir sinnt vinnunni hvaðan sem er.
Eiginleikar fyrir teymi
Með fyrirtækjaaðgangi geta fleiri notendur unnið saman með öll skjöl fyrirtækisins. Hægt er að stilla mismunandi heimildir og getu ólíkra notenda eftir því hvernig aðgang þeir eiga að fá. Ef starfsmenn hætta hjá fyrirtækinu taka þeir aldrei nein gögn með sér úr fyrirtækinu.
-
Hægt er að láta notendur samþykkja skjöl áður en þau fara í undirritun til þess að staðfesta hvort skjölin séu rétt og í lagi áður en aðrir aðilar fá fá póst um skjal til undirritunar.
-
Búðu til röð aðgerða fyrir hvern undirritunaraðila til að tryggja að undirritunarferlið sé skipulagt og framkvæmt í réttri röð.
-
Stilltu undirritunarfresti og viðbótar áminningar til að tryggja að aðrir aðilar undirriti skjölin á réttum tíma.
-
Flokkaðu skjöl í mismunandi flokka fyrir þægilegri og betri yfirsýn og stjórnaðu notendaréttindum til að breyta, deila eða eyða skjölum í hverjum flokki.
-
Þátttakendur sem þú bætir við sérhvert skjal geta haft mismunandi hlutverk: undirritandi, samþykkjandi eða með lesaðgang.
-
Öll gögn sem þitt starfsfólk meðhöndlar er eign fyrirtækisins þannig að ef starfsmaður hættir störfum þá tekur hann engin skjöl með sér sem tilheyrir fyrirtækjaaðganginum. Hægt er að stjórna aðgangsheimildum og sýnileika hvers notanda.
-
Notkun allra starfsmanna er sameinuð og einn sameiginlegur reikningur fyrir alla notkun fyrirtækisins.
-
Notaðu mismunandi reikninga fyrir fyrirtæki og einkanotkun til að aðgreina eignarhald skjala, fyrirhugaða notkun og kostnað.
Fyrirtækjalausnir
Með sérmerktu útliti í kerfinu sjá viðskiptavinir þitt myndmerki og þína liti þegar þeir undirrita skjöl. Einnig er hægt að samþætta lausnina til þess að skjöl fari sjálfvirkt inn í þitt eigið kerfi. Margar samþættingar eru nú þegar tilbúnar fyrir flest skjalavistunarkerfi.
-
Búðu til sérsniðna undirritunarupplifun með þínu vörumerki fyrir viðskiptavini þína og samstarfsaðila.
-
Samþættu API til að sjálfvirknivæða aðgerðir í undirritunargáttinni beint inn í upplýsingakerfið þitt.
-
Fáðu persónulega þjálfun í notkun Dokobit og öðru sem þarf til að hefja notkun.
-
Þjónustuaðgengi allan sólarhringinn, alla daga vikunnar.
API lausnir
Hvort sem þú ert að þróa skjalastjórnunarkerfi, sjálfsafgreiðsluvef eða hvaða rafræna þjónustu sem er - þá býður Dokobit upp á allar nauðsynlegar lausnir með traustum API-lausnum og lágum samþættingarkostnaði. Við höfum séð um erfiðisvinnuna fyrir þig.
Til að safna undirskriftum frá þriðja aðila geturðu samþætt lausnina við upplýsingakerfið þitt með örfáum línum af kóða.
-
Samþættu Universal API við upplýsingakerfið þitt með nokkrum einföldum línum af kóða.
Universal API skjölun -
Gerðu undirskriftarsöfnun einfaldari í þeim Microsoft lausnum sem þú notar, eins og SharePoint, með Microsoft Power Automate.
Lesa meira