Skip to main content

We have a tailored site for international audiences

Með rafrænum skilríkjum tryggir þú öruggari stafræn viðskipti

Með Signicat getur þú bætt við stuðning fyrir rafræn skilríki Auðkennis. Auðkenni er útgáfuaðili fullgildra rafrænna skilríkja á Íslandi fyrir skilríki á farsíma og með Auðkennisappinu sem nýta má fyrir rafrænar undirskriftir og auðkenningar. Fjölmörg fyrirtæki, stofnanir og bankar á Íslandi nota lausnir Signicat.

Af hverju samþætta við Signicat?

Notkun rafrænna skilríkja frá Auðkenni er mjög almenn á Íslandi og dreifing þeirra mikil. Auðkenni gefur út fullgild rafræn skilríki í samræmi við lög nr. 55/2019 (eIDAS).

  • Víðtæk notkun

    Hér á landi er notkun og dreifing rafrænna skilríkja mikil þannig að nánast allir Íslendingar geta nýtt þau hér heima og erlendis. 

  • Uppfyllum eIDAS

    Lausnir Signicat mæta hæstu kröfum viðeigandi laga og reglugerða, og hefur lokið vottun um samræmi.  

  • Auðveld innleiðing

    Hannað fyrir forritara - stöðluð API þjónusta fyrir örugga innleiðingu á íslenskum rafrænum skilríkjum.  

Rafræn skilríki á Íslandi

Auðkennisappið 
Ný kynslóð rafrænna skilríkja sem eru gefin út í appi. Appið er aðgengilegt fyrir iPhone og Android snjallsíma. Skilríkin eru ekki háð því að notandinn sé með íslenskt símanúmer. Notendur geta sótt appið og sett þau sjálfir upp heiman frá sér með íslensku vegabréfi.  
Lesa meira

Rafræn skilríki á farsíma  
Skilríkin eru vistuð á SIM kortum notenda sem tengt er við íslenskt farsímanúmer. Notkun þeirra er víðtæk meðal íslendinga fyrir örugga innskráningu og undirskriftir. 
Lesa meira