Gerðu þjónustur þínar öflugri með Dokobit API
Við hönnum þjónustur sem eru auðveldar fyrir hugbúnaðarfólk að innleiða og viðhalda, sem starfsmenn geta auðveldlega notað og veita ytri notendum bestu mögulegu upplifun.
Við umbreytum flókinni tækni yfir í einfaldar og aðgengilegar þjónustur sem auðvelt er að nota.
-
Stöðugar umbætur
Síbreytilegt umhverfi rafrænna undirskrifta með nýjum reglugerðum kallar oft á að tæknin fylgi hratt á eftir. Með Dokobit þarft þú ekki að hafa áhyggjur af því. Láttu okkur sjá um það!
-
Einföld innleiðing
API vefþjónusturnar okkar eru hannaðar svo að þitt teymi sérfræðinga og viðskiptavina geti innleitt vefþjónusturnar inn í þitt upplýsingakerfi á einfaldan hátt.
-
Enginn stofnkostnaður
Með því að velja okkar API vefþjónustur þarf ekki neinn stofnkostnað. Það kostar ekkert að byrja strax að þróa á með okkar þjónustum.
Við höfum allt sem þú þarft
Hvort sem þú ert að þróa skjalastjórnunarkerfi, þjónustuvef eða hvaða aðra rafræna þjónustu sem er, þá hefur Dokobit alla þá eiginleika sem þú þarft með stöðugum API vefþjónustum og góðri skjölun sem einfaldar verkefni forritara. Við erum búin að leysa alla flóknu hlutina fyrir þig.
Öflun undirskrifta
Vefþjónusta til að fá skjöl undirrituð af viðskiptavinum og öðrum ytri aðilum.
Undirritun
Heilstæð API lausn fyrir allt sem tengist rafrænni undirritun, langtímavarðveislu, tímastimplun og sannreyna skjöl.
Auðkenning
Vefþjónusta til að auðkenna notendur á öruggan hátt með rafrænum skilríkjum á farsímum eða kortum.
Innsigli
Vefþjónusta til að rafrænt innsigla skjöl með innsigli fyrirtækis eða stofnunar til að tryggja uppruna og heilleika gagna.
Rafræn þjónusta milli landa
Dokobit styður fjölda rafrænna skilríkja innan Evrópu. Með okkar lausnum er einfalt að tengjast notendum og bjóða þína þjónustu innan fjölda Evrópuríkja og víðar.
-
Dokobit styður til viðbótar við skilríki á Íslandi; norsk, dönsk, sænsk, finnsk, pólsk, litháísk, lettnesk, eistnesk, belgísk og hollensk skilríki. Einnig bjóða undirskriftarþjónustur Dokobit upp á möguleikan að fá undirritun frá öðrum ríkjum með SignicatID og Swisscom VideoID lausnum.
-
Í Dokobit getur þú undirritað skjöl með skilríkjum á farsíma, Auðkennisappinu, eParakst mobile, BankID, FTN, itsme, MitID, iDIN, Swisscom, SignicatID og Eistneskum e-recidency skilríkjum. Fleiri lausnir bætast reglulega við. Lesa meira.