Skip to main content

We have a tailored site for international audiences

Skannaðu og staðfestu NFC-flöguna í þínum skilríkjum

Náðu í ReadID Me appið, í Google Play eða App Store til að skanna og staðfesta rafrænu skilríkin þín. Engum persónuupplýsingum er deilt með Signicat eða öðrum aðilum. 

Prófaðu ReadID Me

ReadID Me appið skannar og staðfestir NFC flöguna sem er innbyggð í vegabréfinu þínu, og öðrum persónuskirlíkjum sem styðja rafrænan aflestur og uppfylla kröfur ICAO staðalsins.

Appið notar myndavél símans til að skanna gagnasíðu skjalsins og fær þannig aðgang að innbyggðu flögunni. Það skannar flöguna og birtir upplýsingar handhafa skjalsins, auk upplýsinga um skjalið sjálft. Að því loknu eru framkvæmdar öryggisathuganir, svo sem virk auðkenning (Active Authentication), staðfesting á undirskrift skjals (Document Signature Validation), og Staðfesting á undirskrift lands (Country Signature Validation), og birtir ítarlegar niðurstöður.

ReadID Me framkvæmir staðbundna staðfestingu í símanum þínum og tryggir þannig að upplýsingar úr skjölunum þínum yfirgefa aldrei símann þinn.

Persónuvernd

Við leggjum áherslu á persónuvernd og söfnum ekki persónuupplýsingum um þig. Nánari upplýsingar er má finna í persónuverndaryfirlýsingu ReadID. Vinsamlegast athugið að ReadID Me appið er aðgengilegt almenningi og eingöngu hugsað fyrir notendur, client-only.
Upplýsingar úr vegabréfi þínu yfirgefa ekki símann þinn.

Algengar spurningar um ReadID Me appið


Svör við öllum spurningum sem þú gætir haft og fleira

  • Við gerum það til að þú getir lesið og sannreynt auðkennisskjölin þín. Við seljum leyfi fyrir undirliggjandi hugbúnaði til viðskiptavina okkar, sem geta síðan byggt sín eigin forrit með honum. Þar sem þessi leyfisveiting borgar reikningana okkar, getum við boðið ReadID Me appið ókeypis og án auglýsinga.

  • Til þess þarftu að hlaða niður öðru appi. Leitaðu að „ReadID Ready“ í App Store eða í Google Play. Þetta app býður upp á möguleika á að staðfesta auðkenni þitt fyrir þriðja aðila með því að deila á öruggan hátt þeim upplýsingum sem lesnar eru úr auðkennisskjali þínu. Til þess að byrja þarftu að hefja arftu að hefja staðfestingarlotu með því að skanna QR kóða eða smella á hlekk sem þriðji aðilinn veitir þér. Þetta er ekki hægt að gera í gegnum ReadID Me appið, þar sem öll lesin gögn eru áfram á tækinu þínu.

  • Inverid er nýtt nafn InnoValor frá 2022 og árið 2025 er Inverid keypt af Signicat. Appið er enn það sama og undirliggjandi tækni er jafn traust og áður.

  • Þessi útgáfa af appinu er veitt eins og hún er og án ábyrgðar. Þú getur notað það til að lesa og staðfesta skilríki þín. Við gerum engar kröfur um nothæfi þess í neinum sérstökum tilgangi. Við viljum einnig leggja áherslu á að staðfesting á undirskrift lands er takmörkuð við fastan lista yfir lönd, (CSCA) vottorð sem eru innbyggð í appið og að þessi listi gæti verið ónákvæmur.

  • Fyrst skaltu ganga úr skugga um að myndavélin sjái gagnasíðuna skýrt, þar á meðal Machine Readable Zone (MRZ, neðstu 2 eða 3 línurnar í vegabréfinu/persónusilríkinu), og gæta þess að engir fingur séu fyrir og að engin glampi frá ljósi sé á gagnasíðunni. Ef þú sérð ekki MRZ-reitinn, sér hugbúnaðurinn okkar hann heldur ekki. Oft hjálpar að halla vegabréfinu örlítið eða skýla því fyrir ljósglampa. Ef það hjálpar ekki getur þú alltaf slegið inn nauðsynlegar upplýsingar úr MRZ handvirkt með því að ýta á hnappinn með lyklaborðstákninu. Í sjaldgæfum tilfellum getur appið lesið MRZ-reitinn rangt; þá geturðu notað sama handvirka innsláttarmátann til að leiðrétta upplýsingarnar.

  • Ef lestur flögunar hefst ekki er það í flestum tilvikum vegna þess að NFC-loftnetið í símanum þínum og NFC-loftnetið í skilríkjunum þínum eru ekki rétt stillt saman. Það getur hjálpað að hreyfa skilríkin hægt og rólega þar til lesturinn hefst. Þegar lesturinn er hafinn skaltu halda símanum alveg kyrrum svo að NFC-tengingin rofni ekki. Appið leiðbeinir þér hvernig þú átt að halda símanum og skilríkjunum saman til að auðvelda lesturinn.

    Ef ofangreint hjálpar ekki getur verið gagnlegt að fjarlægja hulstur af símanum og/eða vegabréfinu, þar sem þau geta hindrað NFC-merkið. Það getur einnig hjálpað að halda símanum á opnu „aðal“ síðu vegabréfsins eða á innanverðri bakhliðinni. Vinsamlegast hafðu í huga að loftnetið í bandaríska vegabréfinu er staðsett í innanverðri bakhliðinni og opna þarf vegabréfið til að fá aðgang að flögunni.

    Í sjaldgæfum tilfellum gæti síminn þinn haft NFC, en aðeins stutt tegund A-merkja, en skilríkið þitt gæti verið af tegund B.

  • Fyrir Android þarftu að hafa Android 7 eða nýrri útgáfu með NFC. Þetta getur verið sími eða spjaldtölva. Nánast allir mið- og hágæða snjallsímar eru með NFC, þó ekki ódýrustu snjallsímarnir. Nýrri snjallsímar eru líklegri til að hafa NFC en eldri símar. Auk upplýsinga frá framleiðanda snjallsímans þíns eru til fjölmargar vefsíður þar sem þú getur komist að því hvort síminn þinn hafi NFC (t.d. http://www.nfcworld.com/does-my-phone-have-nfc/). Eins eru til ókeypis öpp sem hafa það hlutverk að láta þig vita hvort síminn þinn styðji NFC.

    Fyrir iOS þarftu iPhone 7 eða nýrri, sem keyrir iOS 14 eða nýrri útgáfu. iPadar virka ekki þar sem þeir hafa ekki NFC getu sem til þarf.

  • Við styðjum iPhone með iOS 14 eða nýrri, frá iPhone 7 og upp úr. Við styðjum ekki iPad þar sem þeir hafa ekki þá NFC getu sem við þurfum.

  • Í grunnin eru það tvö skref. Það fyrra er að skanna svokallaða gagnasíðu, þar á meðal Machine Readable Zone (MRZ), með myndavélinni. MRZ samanstendur af tveimur eða þremur línum neðst í vegabréfinu eða persónuskiríkinu. Við notum OCR-tækni (þ.e. Optical Character Recognition) til að lesa kortanúmerið, gildistíma og fæðingardag. Þetta er nauðsynlegt til að lesa snertilausu flöguna í vegabréfinu/persónuskirlíkinu. Eftir að þessar upplýsingar hafa verið skannaðar með góðum árangri heldurðu vegabréfinu/persónuskilríkinu upp að bakhlið símans þíns, og þá er snertilausa flagan lesin með NFC-tækni. Appið sýnir hvaða upplýsingar eru lesnar.

  • Flest, en ekki öll, lönd gefa út skilríki með snertilausum flögum. Tæknilega séð styðja flest lönd ICAO 9303 vegabréf eða rafræn lesanleg ferðaskjöl (eMRTD). Það ætti að vera örflögumerki á kápu vegabréfsins og/eða á aðalsíðunni ef vegabréfið þitt hefur snertilausa flögu.

  • Það er mjög mismunandi eftir löndum. Til dæmis eru skilríki frá Holland með flögur sem uppfylla ICAO 9303-staðalinn. En Þýskaland notar snertilausar flögur sem uppfylla ekki staðalinn. Og sum lönd gefa út skilríki án flögu. Við mælum með að leita á netinu til að finna út hvers konar flögu skilríkið þitt hefur. Vinsamlegast athugaðu að löggjöf ESB gerði ICAO-samhæfða flögu að skyldu fyrir öll persónuskilríki innan ESB.

  • Þó að þýska rafræna skilríkið (neuer Personalausweis, NPA) sé nokkuð líkt ICAO 9303-staðlinum sem notaður er fyrir öll vegabréf og mörg persónuskirlíki uppfyllir það ekki staðalinn. Við styðjum ekki NPA eins og er, þótt þýska rafræna vegabréfið sé stutt.

  • Það fer eftir símanum þínum og hraða flögunnar í skilríkjum þínum, en það tekur venjulega um 8 sekúndur. Meiri hluti tímans fer í að lesa háskerpumyndina. Önnur öpp sem nota undirliggjandi hugbúnað okkar geta sleppt þessu skrefi til að flýta verulega fyrir ferlinu.

  • Þetta er mismunandi fyrir iOS og Android ReadID Me öppin okkar. Í iOS er ekki hægt að flytja gögn úr skilríkjum þínum. Það er hinsvegar hægt í Android.

    Í Android appinu okkar geturðu notað deilingarvirkni Android til að senda þér gögnin í tölvupósti. Forstilling appsins er þannig að það takmarkar þær persónuupplýsingar sem þú getur deilt til að vernda notendur gegn því að deila óvart persónulegum gögnum, til dæmis á Facebook. Í stillingunum geturðu stækkað safn persónuupplýsinga sem hægt er að deila.

    Vinsamlegast hafðu í huga að við bjóðum ReadID Me appið án endurgjalds. Ef þú notar það í atvinnuskyni og vilt aðra möguleika til að flytja út gögnin, vinsamlegast hafðu samband við okkur til að fá leyfi fyrir undirliggjandi hugbúnaði okkar til að búa til þitt eigið app.

  • Þetta er app sem við bjóðum ókeypis til að lesa og staðfesta skilríkin þín. Þú getur fengið leyfi fyrir þessari undirliggjandi tækni til að búa til þitt eigið app, með þeirri notendaupplifun sem þú vilt, og samþætt það við eigin bakendakerfi.

  • Bandaríska vegabréfsskírteinið (U.S. Passport Card) er ekki stutt, vegna þess að það byggir á annarri RFID-tækni sem er ekki samhæfð NFC, en bandarísk rafræn vegabréf (bæklingar) eru studd.

  • ReadID Me geymir engar af þeim upplýsingum sem skannaðar eru eða lesnar af flögunni. Um leið og þú lokar appinu er upplýsingunum eytt úr símanum þínum.

  • Já, það gerum við! Við styðjum rafræn ökuskírteini sem uppfylla ISO18013-staðalinn. En hafðu í huga að ekki mörg lönd hafa slík skírteini. Hingað til höfum við aðeins prófað þetta með hollenskum ökuskírteinum.

  • Annaðhvort er innihald flögunnar eftirlíking (clone) eða tæknilegt vandamál kom upp við ferlið við að greina eftirlíkingu (clone detection process). Nánari upplýsingar er að finna í blogginu um greiningu eftirlíkinga.

  • Við leggjum áherslu á persónuvernd og söfnum ekki persónuupplýsingum um þig. Nánari upplýsingar er að finna í persónuverndaryfirlýsingu okkar fyrir ReadID Me appið.

  • Við styðjum ICAO 9303 eMRTD-staðalinn og ISO18013-staðalinn (rafræn ökuskírteini).

  • Já þú getur það! Vinsamlegast hafðu samband við okkur.

  • Með ákveðnum snjallsímum (t.d. LG Nexus 4) koma stundum upp vandamál við lestur ákveðinna skilríkja, sérstaklega við virka auðkenningu (Active Authentication). Almennt virka nýrri snjallsímar betur en eldri.

    Sum skilríki loka tímabundið fyrir aðgang eftir endurteknar aðgangstilraunir með röngum BAC-auðkenningum.

    Staðfesting á undirskrift landser takmörkuð við fasta lista yfir opinberlega aðgengileg landsvottorð (CSCA) sem eru innbyggð í appið.

  • Við viljum gjarnan heyra um hana, vinsamlegast hafðu samband við okkur. Hafðu þó í huga að þetta er ókeypis forrit, svo við gætum ákveðið að bæta ekki við þeim eiginleika sem þú óskar eftir eða, ef við gerum það, gæti það tekið einhvern tíma. Ef við fáum endurteknar beiðnir um sama eiginleikann, er líklegt að hann fái forgang.

  • Segðu vinum þínum frá því og gefðu okkur hæstu einkunn í Google Play Store eða App Store.

  • Til að auðvelda þér að tilkynna villur, bættum við við hnappinum „Tilkynna villu“ í ReadID Me appinu. Smelltu einfaldlega á punktana þrjá efst í hægra horninu og veldu „Tilkynna villu“. Þú getur síðan sent villutilkynninguna í tölvupósti á feedback@signicat.com. Við þökkum fyrir aðstoðina.

  • Þú getur haft samband við okkur á readid@signicat.com.