Að umbreyta samgöngugeiranum með rafrænni innskráningu
Samgöngugeirinn stendur frammi fyrir sífellt flóknari áskorunum — þar sem regluverkið tekur sífelldum breytingum og væntingar notenda síaukast. Til að halda í við þessa þróun þurfa fyrirtæki að innleiða snjallar, stafrænar lausnir sem einfalda ferla og tryggja öryggi.
Rafræn innskráning er ómissandi fyrir samgöngufyrirtæki sem vilja stækka, efla traust og veita hnökralausa upplifun fyrir nýja notendur — án þess að skerða öryggi eða samræmi við lög og reglur.
Rafræn innskráning sem grunnstoð stafrænna samöngulausna
Við að sækja nýja markaði fylgir oft áskoranir eins og ný regluverk, menningartengdar væntingar og fjölbreyttar auðkenningaraðferðir. Til að vaxa þurfa fyrirtæki að takast á við þessar áskoranir – og rafræn innskráning er lykillinn að því að einfalda ferlið og tryggja að öllum lögum sé fylgt.
Alþjóðleg lög geta verið margslungin – sum lönd krefjast vegabréfs, önnur samþykkja ökuskírteini eða rafræn skilríki. Reglur eins og GDPR í Evrópu geta gert hlutina flóknari. Lausnir sem styðja við mismunandi rafræn auðkenni, eins og Auðkenni, BankID (Svíþjóð), iDIN (Holland) eða eIDV, gera fyrirtækjum kleift að mæta staðbundnum kröfum á einfaldan hátt. Sjálfvirkar uppfærslur hjálpa einnig við að fylgja nýjustu reglum og draga úr áhættu.
Handvirk verkferli eru tímafrek og auka líkur á mistökum. Rafræn innskráning sjálfvirknivæðir allri regluverkafylgni og býður upp á skalanlegt ferli. Með hefðbundinni innskráningu er erfitt að mæta aukinni eftirspurn – sérstaklega þegar fyrirtæki stækka hratt. Það leiðir til tafa, aukins kostnaðar og minni ánægju notenda. Rafræn innskráning leysir þessi vandamál með sjálfvirkni – og gerir fyrirtækjum kleift að vinna úr þúsundum umsókna á skilvirkan hátt.
Samkvæmt skýrslu Forrester um heildaráhrif Signicat skila slíkar stafrænar lausnir allt að 303% arðsemi á þremur árum og draga úr svikum um 75%.
Að draga úr svikum og auka öryggi
Svik eru alvarleg áskorun í samgöngugeiranum og fyrirtæki þurfa að vera með virkar og nýstárlegar lausnir til að bregðast við þessari þróun.
Ein helsta áskorunin eru fölsuð skjöl, t.d. fölsuð ökuskírteini. Nútíma stafræn tækni notar gervigreind og háþróaðar greiningaraðferðir – eins og örflöguskönnun, gagnasamsvörun og gervigreind – til að staðfesta skjöl nánast samstundis. Þetta tryggir að aðeins réttmætir notendur fái aðgang að þjónustunni og dregur úr þörfinni fyrir handvirkri yfirferð.
Rafrænar auðkenningar, þ.e.a.s. dulkóðuð rafræn skilríki, bæta enn frekar öryggið. Notendur geta framvísað auðkenningu og stýrt eigin gögnum. Fyrir fyrirtæki minnkar þetta núning í ferlinu, bætir upplifunina og byggir traust – sem skilar sér í betri ímynd og ánægðari notendum.
Lífkenni - eins og fingrafaraskönnun, andlitsgreining og hegðunargreining - eykur öryggið enn meira. Slíkar aðferðir tryggja að aðeins réttir einstaklingar geti notað þjónustuna og dregur úr svikum og tjóni.
Einföld og örugg notendaupplifun
Öryggi er nauðsynlegt – en notendur búast einnig við einföldu og þægilegu innskráningarferli. Flókin og tímafrek ferli geta valdið pirringi og jafnvel leitt notendur til samkeppnisaðila. Lausnir sem nýta NFC-skönnun, OCR-tækni og sjálfvirka útfyllingu fanga gögn fljótt og minnka tafir. Samkvæmt fyrrnefndri Forrester-skýrslu geta einfaldari ferlar aukið nýskráningarhlutfall um allt að 19%.
Meirihluti notenda nýta farsíma til að skrá sig í þjónustu – því er mikilvægt að lausnir séu hannaðar með „mobile-first“ hugsun. Aðgerðir eins og sjálfvirk endurgjöf og auðkenningar sem eru sniðnar að farsímaöppum auka notendavænt flæði og dregur úr brottfalli við nýskráningu.
Fimm daga vöxtur Hyre með Signicat
Bílaeign getur falið í sér frelsi – en einnig viðhald, tryggingar, sektir og önnur óvænt útgjöld. Hyre var stofnað til að bjóða upp á frelsi bíls án kostnaðarins. Fyrirtækið stækkaði frá Osló til Stokkhólms og Kaupmannahafnar og þurfti að mæta flóknum regluverkum og auðkenningarkröfum á nýjum mörkuðum.
Með því að nýta Signicat tókst þeim að innleiða rafræn auðkenni á borð við BankID (Noregur og Svíþjóð) og MitID (Danmörk) – á einungis 5 dögum. Niðurstaðan: straumlínulagað innskráningarferli, aukið samræmi og betri upplifun fyrir notendur.
Undirbúningur fyrir stafræna framtíð samgangna
Innskráning með stafrænum hætti hefur reynst ómetanleg fyrir fyrirtæki í samgöngugeiranum sem standa frammi fyrir flóknum áskorunum nútímans. Með því að auka samræmi við reglur, draga úr svikum, skala þjónustu og bæta upplifun viðskiptavina, býður hún upp á raunverulegan ávinning.
Stafræn innskráning er ekki lengur einungis kostnaðarsparnaður – heldur framsækin stefna sem gerir fyrirtækjum kleift að mæta þörfum nútímans á meðan þau undirbúa sig fyrir framtíðina. Hvort sem það snýst um að sækja inn á nýja markaði eða byggja upp traust í samkeppnishæfum geira, skiptir þessi tækni sköpum.
Fyrirtæki sem innleiða slíkar stafrænar lausnir tryggja sér ekki aðeins samkeppnisforskot – þau móta framtíðina þar sem einfaldar, öruggar og sveigjanlegar þjónustuleiðir verða nýja normið. Þau sem hinkra of lengi gætu átt í hættu að dragast aftur úr í síbreytilegu umhverfi.