Signicat kaupir íslenska hugbúnaðarfyrirtækið SmartWorks
Signicat, stærsti veitandi í Evrópu í rafrænum auðkenningarlausnum, hefur tilkynnt um kaup á íslenska hugbúnaðarfyrirtækinu SmartWorks, stærsta veitanda Íslands á rafrænum undirskriftum. SmartWorks hefur haft umboð á rafrænum undirskriftalausnum frá Dokobit á Íslandi og með kaupum Signicat á allri starfsemi SmartWorks flytjast allir starfsmenn yfir til Signicat. Með starfsemi um alla Evrópu miða þessi stefnumótandi kaup að því að styrkja viðveru Signicat og auka umfang þess á Íslandi.
SmartWorks var stofnað í Reykjavík árið 2016 af Ólafi Páli Einarssyni og sem umboðsaðili Dokobit á Íslandi er það stærsti veitandi rafrænna undirskrifta á Íslandi. Fyrirtækið hefur vaxið gríðarlega í gegnum árin og telur stór fyrirtæki úr öllum geirum meðal viðskiptavina sinna, þar á meðal hið opinbera. Meðal viðskiptavina þess eru Íslandsbanki, Brimborg og Reykjavíkurborg.
Frá árinu 2019 hefur Signicat stækkað evrópska starfsemi sína með sex stefnumótandi yfirtökum til að styrkja sérstöðu sína, viðskiptavinahóp og markaðsþekkingu, þar á meðal Dokobit í Litháen árið 2021.
"Við erum mjög áhugasöm um þessi kaup þar sem SmartWorks er leiðandi á Íslandi þegar kemur að stafrænum auðkenningarlausnum. Nú getum við nýtt okkur sérfræðiþekkingu og auðlindir SmartWorks enn frekar til að selja safn okkar af stafrænum auðkenningarlausnum yfir íslenskan markað," segir Asger Hattel, forstjóri Signicat. "Lausnin okkar Dokobit by Signicat er nú þegar viðurkennd á Íslandi og notuð af bæði einkafyrirtækjum og opinberum stjórnvöldum. Við höfum nú frábært tækifæri til að stækka vörumerki Signicat á Íslandi en einnig til að hjálpa íslenskum fyrirtækjum að berjast gegn svikum og vaxa þvert á landamæri með minni áhættu og öruggari viðskiptum,“ bætir hann við.
Með þessum kaupum stefnir Signicat að því að auka viðveru sína á Íslandi með því að bjóða upp á alhliða safn sitt af stafrænum auðkenningarlausnum. Að sama skapi gerir það ráð fyrir að auka sölu og umfang sitt á Íslandi, ekki aðeins á Dokobit by Signicat, heldur einnig á öðrum Signicat vörum. Nýleg rannsókn frá óháðum þriðja aðila leiddi í ljós að fyrirtæki sem nýta sér lausnir Signicat njóta yfir 300% arðsemi á fjárfestingu.
"Rafrænar undirskriftir eru víða viðurkenndar og nú þegar orðinn viðskiptastaðall á Íslandi. Hins vegar nær traustþjónusta langt út fyrir rafrænar undirskriftir með auðkenningum, sannreyningum, löggildingum og mörgum öðrum tengdum þjónustum. Þessi sameining setur okkur í þá stöðu að móta framtíð stafrænnar auðkenningar á Íslandi og leiðir til samstarfs við alla helstu hagsmunaaðila að skilgreina hvernig markaðurinn mun þróast,“ segir Ólafur Páll Einarsson, forstjóri og stofnandi SmartWorks. "Við erum mjög spennt að ganga til liðs við Signicat og það mun efla þjónustuframboðið fyrir íslensk fyrirtæki til muna. Signicat nýtur trausts af leiðandi fyrirtækjum um allan heim og er stutt af Nordic Capital, einum stærsta einkahlutasjóði Evrópu," bætir hann við.
Signicat er með alþjóðlegt umfang og þjónar yfir 13.000 viðskiptavinum í 44 löndum, þar á meðal alþjóðlegum aðilum í fjármálageiranum og opinberum stofnunum. Fyrirtækið hefur nýlega hlotið viðurkenningu á lista Financial Times 1000 yfir ört vaxandi fyrirtæki í Evrópu fyrir árið 2024 og í þriðja sinn síðan 2021.
Bæði félögin hafa samþykkt að fara með fjárhagslegar upplýsingar um viðskiptin sem trúnaðarmál og hafa því ekki gefið upp skilmála kaupanna. Allir starfsmenn SmartWorks hafa gengið til liðs við Signicat teymið og Ólafur Páll Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdarstjóri Signicat á Íslandi.