Skip to main content

We have a tailored site for international audiences

Signicat Blogg
Gavin Gaudet

VP Product, Tribe Lead @ Signicat

Vertu fyrstur til að prófa MintyAI

Við kynnum með stolti MintyAI – viðbót við kóðalausu lausnina okkar, Signicat Mint! Þessi nýi gervigreindaraðstoðarmaður einfaldar og flýtir fyrir því að hanna samræmd, stafrænferli – án þess skrifa eina línu af kóða. Vertu hluti af fyrstu notendum og hafðu áhrif á áframhaldandi þróun með endurgjöfum. Forvitin(n) um hvað þú færð í staðinn? Lestu áfram og kynntu þér öll fríðindin sem bíða þín.

Gervigreind hefur vakið mikla athygli síðustu ár. Hjá Signicat er markmið okkar að bæta lausnir stöðugt - og því var það eðlilegt skref að nýta gervigreind til að gera Signicat Mint enn aðgengilegri fyrir notendur sem ekki eru forritarar.

Frá hakkaþoni yfir í snjallan AI-aðstoðarmann: Hvernig MintyAI virkar

MintyAI varð til út frá einfaldri en öflugri spurningu – hvernig getum við gert fyrstu skrefin í Signicat Mint enn auðveldari? Þó möguleikarnir á að samþætta gervigreind væru margir, kom fljótt í ljós að nýjum notendum Signicat Mint fannst upphafsskrefin svolítið flókin.

Þar kviknaði hugmyndin að MintyAI – gervigreindardrifnum aðstoðarmanni sem einfaldaði fyrstu skrefin með Mint. MintyAI var upphaflega þróað í „hackathon“ sem tilraun, en þróaðist fljótlega í tól i sem fjarlægir flækjur, örvar hugmyndaflug og leiðbeinir notendum í að búa til sitt fyrsta flæði í Signicat Mint.

MintyAI er nú í beta og gerir notendum kleift að byrja með drög að ferli, sniðið að þeirra þörfum. MintyAI þekkir öll tiltæk skref í flæði – nöfn þeirra og lýsingar – og býr til grunnferli út frá því sem notandinn gefur upp. Einn helsti styrkur MintyAI er að umbreyta skipunum beint í virkt ferli innan Mint. Auk þess getur MintyAI svarað spurningum um ákveðin skref – án þess að notandinn þurfi að fletta upp í skjölun. Það sparar bæði tíma og fyrirhöfn.

Hvað getur MintyAI gert?

Með MintyAI geturðu notað hversdagslegt mál til að lýsa því flæði sem þú vilt byggja. MintyAI svarar með tillögu – og þú getur annað hvort samþykkt hana með einum smelli eða þróað flæðið frekar með því að spjalla við MintyAI.

Hér er hannað nýskráningarferli í samræmi við KYC með MintyAI í Signicat Mint.

Af hverju að taka þátt í beta-prófun MintyAI?

Þátttaka í beta-prófun MintyAI gefur þér tækifæri til að hafa áhrif á framtíð gervigreindardrifinna ferla – og fá aðgang að öflugum eiginleikum á undan öðrum. Með því að vera í prófunarteyminu heldur þú þér á undan þróuninni og tekur virkan þátt í að móta tól sem gerir Signicat Mint hraðvirkara og skilvirkara.

Þú færð til dæmis.:

  • Forgang að nýjum eiginleikum: Sem beta-notandi prófar þú fyrst nýjar lausnir sem breyta því hvernig þú vinnur.
  • Tækifæri til að móta framtíðina: MintyAI stefnir á að umbreyta ferlastjórnun með gervigreind. Ímyndaðu þér að búa til flæði frá grunni með aðstoð gervigreindar eða að vakta áhættur í rauntíma með sjálfvirkum viðvörunum. Þetta er ekki bara hugmynd – þú getur tekið þátt í þessari vegferð frá upphafi.
  • Að vera hluti af nýsköpun: Beta-notendur eru ekki bara prufudýr, heldur lykilaðilar í þróun MintyAI. Þín endurgjöf hefur bein áhrif á hvernig tólið þróast – svo það uppfylli raunverulegar þarfir notenda.